Tún gegnt Haukahlíð/Vatnsmýri

Tún gegnt Haukahlíð/Vatnsmýri

Hvað viltu láta gera? Setja grenitré á þetta stóra tún og lýsa það upp í skammdeginu eða yfir aðventu-þrettándann. Hvers vegna viltu láta gera það? Túnið er stórt og væri gott að girða það af og lýsa upp. Það væri fallegt að sjá upplýst grenitré á því miðju og jafnvel að setja fallegan gróður eða búa til garð/torgstemningu á því fyrir íbúa í hverfinu að koma saman á.

Points

Aðkomu í Hlíðarendahverfið Nauthólsmegin frá í skammdeginu þyrfti að lýsa betur upp - nokkur umferð er þarna um fólks í skóla og vinnu, bæði akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur. Túnið er glæsilegt og um að gera að gera þetta glæsilega úr garði.

Sammála, það er mikil þörf á lýsingu þarna. Það myndi líka gera mikið fyrir þetta græna svæði fyrir framan hverfið að ramma það af með trjám eða limgerði, þeas hliðina sem snýr að flugvellinum.

Stórt grænt svæði þarna. Það vantar gróður/tré og að lýsa það upp yfir veturinn. Líst mjög vel á tillögu Kristínar. Það er töluverð umferð þarna, t.d. fólk á hjólum og rafskutlum sem sést mjög illa. Það þarf að klára ljósastaurana sem komið hefur verið fyrir við Nauthólsveg.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information