Sundlaug/sundaðstöðu á Hafnarbakka Gömlu Hafnarinnar

Sundlaug/sundaðstöðu á Hafnarbakka Gömlu Hafnarinnar

Hvað viltu láta gera? Sundaðstaða / útivistarsvæði á bakka Gömlu Hafnarinnar í Reykjavík. Af hótelvæðingu er löngu komið nóg í miðborginni. Ibúar vilja meira svæði og fjölbreyttari aðstöðu fyrir sig í nágrenni heimilisins. Hér hafa verið byggðar lúxusíbúðir í kringum höfnina og það kallar á okkar svæði, okkar ibúanna. Túristavæðingin er nu þegar næg og til staðar og þetta ætti að draga bæði þá og okkur heimafólk að svæðinu til að njóta og nota. Það er komið að okkur íbúunum. Þarna gltu risið lágreistar byggingar, bæði fyrir skiptiklefa f.sundiðkun og svo sölu/þjónustuhús fyrir litlu farþegaskipin. Hvers vegna viltu láta gera það? Væri mikið augnayndi og til mikils gagns bæði fyrir íbúa og ferðafólk.

Points

þetta er svona hugsun sem við þurfum að sjá meira af. ferðamenn koma ekki hingað til að gera túristaskít, að borða ”Icelandic street food” (hvað í fjandanum sem er) með hverju skilti á ensku að reyna að grípa peningana sína. þeir koma til að upplifa lífið í borginni okkar sem nýlega hefur ekki verið til. 🏴‍☠️

Þetta væri mjög skemmtilegt. Margsstaðar tíðkast það að leika sér við höfnina og stökkva í sjóinn og hafa gaman en það getur verið erfitt fyrir suma í ísköldum íslenskum sjónum. Sundlaug við hafnarbakkann væri fullkomin lausn á þessu.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til Faxaflóahafna. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information