Torg á Grettisgötu 87

Torg á Grettisgötu 87

Hvað viltu láta gera? Gera torg fyrir almenning að Grettisgötu 87, þar sem nú er Bílrúðu-byggingin, til að vera með samkomur, markaði og sinna tómstundum, t.d. minigolfvöllur, hjólabrettagarður eða klifursvæði. Hvers vegna viltu láta gera það? Svæðið býður upp á mikla möguleika og er á besta stað til að tengja fólk hvaðanæva úr bænum, þar sem það er steinsnar frá Hlemmi. Svo verðmætt svæði ætti að vera vettvangur fyrir mannlífið í Reykjavík.

Points

Frábær humynd. Burt með þennan ömurlega steypuklump og búa til líflegan og fallegan skemmtigarð fyrir almenning ... og svo má efna til hugmyndasamkeppni um þennan stókostlega garð.

JÁ, loksins, nýta þetta svæði, hvað er þessi gamla skemma enn að gera þar, garð fyrir íbúa svæðisins, útisvæði fyrir Hlemm Mathöll!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information