Stórfjölga „ljósatrjám" í borginni allri

Stórfjölga „ljósatrjám" í borginni allri

Hvað viltu láta gera? Fjölga trjám sem vafin eru ljósaseríum í borginni með áherslu á stór og stök tré, svo sem í Hljómskálagarði, við Tjörnina, í Grjótaþorpi, við grunn- og leikskóla, á Austurvelli og í Hólavallakirkjugarði. Falleg stakstæð tré er að finna víða um borgina og væri mikil prýði af að lýsa þau upp, þótt hér sé einungis átt við miðborgina. Hvers vegna viltu láta gera það? Ljósin eru falleg í skammdeginu og lýsa það upp. Trén eru ekki beint jólaskraut og því hægt að kveikja á þeim snemma í október og láta þau loga fram undir mars eða lengur.

Points

Mér finnst þetta prýðisgóð hugmynd svo lengi sem þau eru ekki í þessum skerandi bláa lit sem tréð í fógetagarði hefur verið klætt í.

Góð hugmynd, skreytir bæinn

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að verkefni sem er nú þegar í vinnslu/ferli. Uppsetning jólaljósa er árstíðarbundið verkefni og fer þessi hugmynd áfram sem ábending í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information