Göngubrú

Göngubrú

Hvað viltu láta gera? Göngubrú yfir Bústaðaveg við Grísbæ. Hvers vegna viltu láta gera það? Sameina hverfið og auðvelda íbúum þá þjónustu sem Grímsbær hefur uppá að bjóða

Points

Göngubrýr eru til ama fyrir gangandi, sérstaklega þá sem eiga erfitt með gang, eru á hjóli, hlaupahjóli, með barnavagna. Bústaðavegur ætti ekki að vera gegnumakstursbraut, heldur eingöngu ætluð íbúum hverfisins. Þar ætti frekar að lækka umferðarhraða.

Nauðsynleg tenging innan hverfisins, þar sem Bústtaðarvegu liggur. Æskilegast að koma tengingunni á við Grímsbæ. Ýmsar æutfærslur koma tiil greina.

Sammála það þarf að gera eitthvað þarna. Betri lýsingu og lengri tími á gönguljósi. Er oft mjög stressuð að fara með 2 lítil börn þarna yfir

Til lengri tíma litið er göngubrú það eina rétta því þessi staður er mitt á milli umferðaljósa og bílarnir eru komnir á talsferð ferð á þessum stað og umferðin verður líka greiðari og til hagsbóta fyrir alla.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021. Betri tengingar og breytingar á Bústaðavegi við Grímsbæ eru í skoðun annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information