Fleiri bekki

Fleiri bekki

Hvað viltu láta gera? Fjölga bekkjum víðsvegar í hverfinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég og fleiri íbúar erum að fara gangandi í verslanir og líka í öðrum erindum en við rekum okkur á að það mikill skortur á bekkjum víðs vegar í hverfinu til að tilla sér á.

Points

Eldra fólk þarf nauðsynlega að hafa bekki til að hvílast á með hæfilega löngu millibili. Það má setja á kort eða upplýsingaskilti, hvar bekkir eru, til að auðvelda fólki val á gönguleiðum.

hugsa fyrir eldri borgara myndi auka gönguferðir ef vissa er um bekki með vissu millibili

Bekki niður með Háleisbraut frá Slettuvegi og niður að Svartaskógi og merkja Gangbrautir betur og draga úr hraða setja 30 km hámarshraða.!!!!

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og er ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Þín hugmynd var sameinuð við hugmynd sem heitir "Fleiri bekki og ruslatunnur". Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem var valin og verður þannig á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferlisins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information