Lifandi bókasafn

Lifandi bókasafn

Hvað viltu láta gera? Opna aðstöðu og setja upp heimasíðu þar sem hægt er að bóka samverustund með sögumanni eða konu, lifandi bókasafn Hvers vegna viltu láta gera það? Afskaplega mikið er af einmanna fólki sem bæði vill hlusta sem og segja frá, verkefnið mun rjúfa félagslega einangrun sem og bæta andlega líðan margra. Verkefnið getur líka tengst varðveislu munnlegra heimilda sem og verið samþætt verkefnum félagsþjónustunar og fræðslumálum, hægt væri að vera með hópa og fá sögur sagðar með orðum þess er lifði atburði sem ættu erindi til fólks og eða opna fyrir hugarflug og spuna tengdum leiklist, myndmennt ofl Möguleikarnir eru nánast endalausir varðandi virkjun mannshugans og þróun skapandi verkefna

Points

Afskaplega mikið er af einmanna fólki sem bæði vill hlusta sem og segja frá, verkefnið mun rjúfa félagslega einangrun sem og bæta andlega líðan margra. Verkefnið getur líka tengst varðveislu munnlegra heimilda sem og verið samþætt verkefnum félagsþjónustunar og fræðslumálum, hægt væri að vera með hópa og fá sögur sagðar með orðum þess er lifði atburði sem ættu erindi til fólks og eða opna fyrir hugarflug og spuna tengdum leiklist, myndmennt ofl Möguleikarnir eru nánast endalausir varðandi virkju

Góð hugmynd

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information