Stór afþreyingargarðskáli / krakkaland í Grundargerðisgarði

Stór afþreyingargarðskáli / krakkaland í Grundargerðisgarði

Hvað viltu láta gera? Byggja yfirbyggt svæði með blómagarði, svæði til afslöppunar s.s. jóga, öndun hugleiðslu, litla tónleika ofl. Á sama stað mætti vera stórt svæði fyrir börn til að leika inni á blautum dögum. Svona staðir eru algengir í Evrópu og skapa ýmis atvinnutækifæri. Hvers vegna viltu láta gera það? Vantar góðan stað til að kíkja í með börnin og til að sækja afþreyingu í hverfinu.

Points

Góð hugmynd

Engin ástæða er til að byggja yfir blómabeðin. Það mætti endurgera blómagarðinn sem var austast og efst í garðinum þar sem einu sinni var mikill fjöldi plantna og gaman að skoða þegar allt var í blóma. Garðurinn eins og hann er er í dag er mikið notaður af skólabörnum og fólki sem heldur upp á afmæli og aðra viðburði í lífi fólks. Gera mætti sléttar, lárettar afmarkaðar flatir víða um garðinn með borðum og bekkjum þannig að fleiri hópar geti deilt garðinum til veisluhalds.

Mætti einnig setja upp svona aðstöðu við Elliðaárdalinn...

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information