Einstefna á Tjarnargötu

Einstefna á Tjarnargötu

Hvað viltu láta gera? Umferð á Tjarnargötunni á milli Hringbrautar og Skothúsvegar er mikil og bílar keyra þar allt of hratt. Þetta á sérstaklega við um þá umferð sem beygir í norður inn á Tjarnargötuna af Hringbraut. Á þessari götu ætti að vera einstefna í suður. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikið um gangandi og hjólandi vegfarendur á þessari götu - ekki einungis íbúa heldur nemendur og starfsfólk Háskólans og fyrirtækja í Vatnsmýrinni sem og ferðamenn á leið til og frá Þjóðminjasafninu. Þessi hraða umferð sem kemur inn af Hringbrautinni stefnir fólki í hættu, sérstaklega á göngubrautinni syðst á Tjarnargötunni. Að auki er gatan of þröng fyrir umferð í báðar áttir. Ég hef oft orðið vitni að því að bílar lenda hérumbil í árekstri þegar einn kemur brunandi inn af Hringbraut og hinn er á leið suður út á Hringbraut. Þessi breyting myndi auka öryggi allra vegfarenda og lækka umferðarhraða á lítilli götu í íbúðahverfi. Hún er líka ódýr - bara eitt eða tvö skilti við Hringbrautina.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er umrædd hugmynd í skoðun annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information