Auka aðgengi f. hjól, gangandi vegfarendur, rafskutlur o.fl.

Auka aðgengi f. hjól, gangandi vegfarendur, rafskutlur o.fl.

Hvað viltu láta gera? Gera göngustíga, hjólastíga miklu betri og aðgengilegri. Hvers vegna viltu láta gera það? Svo hægt sé að hjóla og labba meira á svæðinu. Maður lendir alltaf á því að labba á götunni, sem er hættulegt. Það eru ekki margar hjóla leiðir/götur og er heldur ekki öruggt að hjóla á götunni því að borgin er stöppuð af bílum og endalaus umferð. Hægt er að horfa til annara landa t.d. Danmörk, þar eru tekin hjól fram yfir bíla og eru aðgengi fyrir hjól og gangandi vegfarendur svo góð:) Þetta á í raun við um allt höfuðborgarsvæðið

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Einnig er uppbygging hjólreiðastíga í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður hugmyndinni komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information