Miklu betri samgöngur

Miklu betri samgöngur

Hvað viltu láta gera? Gera samgöngur miklu miklu betri Hvers vegna viltu láta gera það? Það eina sem við erum með er strætó. Lang flestir Kjósa að nota einkabíl í staðin fyrir strætó, sem mengar miklu meira, umferðin ómöguleg eins og hún er alltaf, vegir og skipulag er bara ekki gott. Það er kannski allt of dýrt að biðja um snarlest eða tramma, en það er svo miklu betra en strætó sem við erum með núna. flest önnu lönd eins og t.d. norðurlöndin eru öll með tramma, snarlest og betri strætó, sem er mjög mikið notað. Margir hafa talað um hversu miklu betri samgöngur þyrftu að vera hérna og spilar það líka verulega inní um að fólk vilji búa í landinu.

Points

ekki bæta við fleira dóti, bara betrumbæta strætó og kerfið, strætó er fínn í grunninn. Fólk velur einkabíla því það á einkabíla, og það keyrir þá af því það er alltaf hentugra en strætó, það hefur ekkert að gera með að strætó sé lélegur, það er bara léleg tíska að þola ekki leiðarkerfið í strætó.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Unnið er að því innan borgarkerfisins að bæta gæði almenningssamgangna, meðal annars með Borgarlínunni. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information