Hjólastæði á Baldurstorgi

Hjólastæði á Baldurstorgi

Hvað viltu láta gera? Væri möguleiki að búa til alvöru hjólastæði sem væri jafnvel vaktað? Nú þegar er vísir að svokölluðu visttorgi til staðar á mörkum Óðinsgötu, Baldursgötu og Nönnugötu. Mjög vel heppnað að hafa þar bekki og grashóla. En Baldursgötumegin er autt pláss sem bannað er að leggja í en sem bílar leggja stöðugt í vegna ónógra merkinga. Það skapar mikil vandræði fyrir til dæmis ruslabílana. Þegar þessi ekki-bílastæði eru ekki í notkun, virðist þetta líta út eins og stoppistöð eða biðstöð bíla, því nánast daglega, og sérstaklega á kvöldin, eru bílar látnir vera í gangi þarna tímunum saman á meðan einhverjir skjótast inn á veitingastað, biðja bílstjóra sinn um að bíða og halda bílnum heitum, eða til að stunda viðskipti af ýmsu tagi eða horfa á mynd í símanum. Allavega eru bílar þarna langtímum saman í gangi með tilheyrandi drunum og mengun. Auðvitað væri hægt að setja upp skilti þar sem bæði er bannað að leggja og hafa bíla í gangi á þessum stað. Það væri góð byrjun. Hitt væri skemmtilegra og mun vistvænna, að koma þarna fyrir veglegu hjólastæði þar sem líka væri hægt að parkera hlaupahjólum sem ella liggja eins og hráviði um allar gangstéttir í hverfinu. Þetta gæti þá hvatt íbúa hverfisins til aukinnar notkunar á hjólum og hlaupahjólum. Á torginu er nú þegar til staðar lítið hjólastæði en það er mjög oft fullnýtt. Hugmyndin er sumsé um framúrstefnulegt reiðhjóla-, hlaupahjóla og bifhjólastæði við jaðar hins svokallaða vist-torgs eða Baldurstorgs. Hvers vegna viltu láta gera það? til að örva hjólreiðar um hverfi sem myndi njóta góðs af því. til að gera ákveðið millibils-rými við torgið að einhverju sem þjónar tilgangi sínum.

Points

Snilldarhugmynd og ekki væri verra ef sett væri rafhleðslupláss hinu megin við hornið (Nönnugötumegin) og sermerkja

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hinum tæku hugmyndunum verður stillt upp á fundi íbúaráðs Miðborgar á miðvikudaginn þann 14. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/465260328253674. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information