Útivistarstígur í vesturhlíð Esju

Útivistarstígur í vesturhlíð Esju

Hvað viltu láta gera? Leggja útivistarstíg frá vesturlandsvegi upp Esjuhlíð á mörkum Smábýla spildna 7 og 8 inn á gömlu þjóðleiðina / póstleiðina í "Græna treflinum" Hvers vegna viltu láta gera það? Auka útivist og hreyfingu og auðvelda og bæta við almennt aðgengi að vestur Esjuhlíðum, þar sem fjölmargt er að skoða.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Umrætt svæði er í langtímaútleigu og ekki hægt að kjósa um framkvæmdir á landinu að svo stöddu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Opnar aðgengi . Þetta er Þarft verkefni.

Kjalnesingar búa í draumalandslagi með bæði fjall og fjöru sér við fætur. Það þarf bara að gera umhverfið aðgengilegra og þar koma gönguleiðir í Esjuhlíðum við sögu. Þær auka úrval þeirra gönguleiða sem fyrir eru. Góð hreyfing og útivist er gulli betri. Auk þess býður þessi hugmynd upp á fræðslu um náttúruna, fuglalífið, sögustaði og örnefni. Svo eitthvað sé nefnt.

Þjóðleiðin/ póstleiðin gamla er minjar um liðna samgönguhætti og vert að halda sögu hennar á lofti ekki síst nú þegar verið er að leggja nýjan Vesturlandsveg. Þarna má sjá dæmi um breytta tíma í samgöngumálum sem snertir sögu Kjalarness. Þessi hugmynd býður upp á marga möguleika, þ.e. útivist, hreyfingu, fræðslu um náttúruna, fuglalífið, sögustaði, örnefni ofl. Esjan er fallegt fjall úr fjarlægð en er enn fallegri í nálægð.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information