Fræðslu- og upplýsingaskilti

Fræðslu- og upplýsingaskilti

Hvað viltu láta gera? Setja upp fimm fræðslu- og upplýsingaskilti á völdum stöðum innan landssvæðis Kjalarness. Svo sem 1. við áætlað nýtt hringtorg við Móa 2. Skógræktina/Arnarhamar 3. Ártún/Blikdal 4. Hofstanga/Naustanes 5. Mógilsá í Kollafirði Hvers vegna viltu láta gera það? Skiltin munu vekja áhuga á svæðinu, náttúru þess og sögu og einnig þeim fjölmörgu útivistarmöguleikum sem svæðið hefur upp á að bjóða. Til að mynda mun skiltið við Móa tengjast vel við göngustíg upp á gömlu þjóðleiðina/póstleiðina.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Kjalarnes á miðvikudaginn næstkomandi þann 24. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/866465844208636. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Söguskilti hafa mikið fræðslu og menningarlegt gildi og nóg er af því efni að taka í gamla Kjalarneshreppi. Þó gerð hafi verið þónokkur slík skilti þá má enn á gera mörgu skil, t.d. í eystri hluta hreppsins gamla svo eitthvað sé nefnt. Þar eru t.d, merkar minjar um kaupstað og höfn á miðöldum sem Kristján Eldjárn telur vera fyrirrennara Reykjavíkur og varðveita skuli, sbr. grein hans í Árbók Hins íslenska fornleifafélags 1980. Kjalarnes býr yfir mikilli sögu sem vert er að fræðast um.

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information