Betri Frakkstígur!

Betri Frakkstígur!

Hvað viltu láta gera? Setja gangbraut og/eða ljós á gatnamót Frakkstígs og Hverfisgötu. Bæta aðkomu að Gistiskýlinu og Tónmenntaskólanum á Lindargötu. Laga hellulögn á Frakkstíg. Auka þrif á þessum svæðum. Hvers vegna viltu láta gera það? Frakkstígurinn er mjög fjölfarin gata. Bæði eru það börn á leið í skóla og/eða Tónmenntaskólann, gangandi vegfarendur á leið frá Skólavörðuholti og niður að Sólfari að ógleymdum gestum gistiskýlisins á Lindargötu. Bílamferð hefur aukist mikið niður Frakkstíginn og erfitt er að komast yfir Hverfisgötuna fyrir gangandi vegfarendur. Gatan hefur verið lagfærð að hluta en hluti hennar er þakin brotnum/skökkum hellum. Samhliða þessu legg ég til að gerð væri bragabót á ,,torginu" framan við gistiskýlið á Lindargötu. Gatnamótin og öll aðkoma að gistiskýlinu er kuldaleg og gera mætti Tónmenntaskólanum/franska spítalanum miklu hærra undir höfði. Einnig er nauðsynlegt að auka þrif á Frakkstíg neðan við Laugaveg í takti við þá starfsemi sem borgin rekur á Lindargötu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information