Leik- og andrými á Baldurstorgi

Leik- og andrými á Baldurstorgi

Hvað viltu láta gera? þegar á að byggja upp hið svokallaða visttorg á mótum óðinsgötu, baldursgötu og nönnugötu væri gott að hafa í huga að hverfið er í vaxandi mæli íbúahverfi með börnum og því væri upplagt að torgið væri áfram hvíldarsvæði, andrými og hugsanlega leikrými, ævintýrasvæði, en ekki torg fyrir veitinganeyslu, enda er slíkt torg nú þegar til í næsta nágrenni (óðinstorg). vegleg hjólreiðastæði (sjá aðra tillögu) mættu síðan afmarka svæðið og ítreka með einhverju móti að varlega sé ekið í gegn. ekki er æskilegt að koma upp sandkassa þar sem fjöldi katta býr í hverfinu en kannski gaman að setja upp klifrugrind, hengirúm og rólur... eða útilistaverk sem má klifra á...einfalda, ódýra en svolítið spennandi þrautabraut. eða hundaróló, afgirtan... Hvers vegna viltu láta gera það? í hverfinu er vöntun á grænu opnu svæði sem stuðlar að leik og samveru í ró og gleði. núna hentar torgið helst reykingafólki, jú jú einhversstaðar verða vondir að vera... en það mætti nýtast fleirum. það er nóg af svæðum í miðbænum þar sem má sitja og drekka og borða og reykja og vaða í gegn... en lítil einföld leikrými vantar.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er fyrirhuguð uppbygging og/eða breytingar á næstu árum á viðkomandi svæði og verður hugmyndinni komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information