Frítt skautasvell í Fossvogi

Frítt skautasvell  í Fossvogi

Hvað viltu láta gera? Við duftgarðinn í Sóllandi hjá Kirkjugörðunum í Fossvogi er falleg tjörn sem alltaf er frosin þegar kalt er í veðri. Það eina sem þyrfti að gera er að fá leyfi hjá Kirkjugörðunum og fá eh til að slétta svellið þegar frost væri svo hægt sé að mæta með skautana. Bara eins og gert var í gamla daga þegar t.d. smíðavöllunum var breytt í skautasvell á vetrurnar í mínu hverfi. Þá kom alltaf bíll frá borginni og sprautaði vatni á flötinn og slétti úr honum okkur til mikillar ánægju. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka fjölbreytnina á að fólk finni sér góða hreyfingu og yndislega skemmtun á veturnar sem kostar ekki. Fallegur staður í Öskjuhlíðinni og gaman að auka hann lífi.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information