Meiri lýsingu í Fossvogsdal

Meiri lýsingu í Fossvogsdal

Hvað viltu láta gera? Fá miklu sterkari og meiri lýsingu í Fossvogsdal. Varð óttaslegin þar sem ég labbaði fyrst niður hjá Skammtímavistun fatlaða Árlandi 1 svo var ég með lífið í lúkunum að fara yfir í Kópavog. Eina lýsingin var á brúnni og þegar komið var yfir í kópavoginn en Reykjavíkurmegin er skammarlega léleg. Hvers vegna viltu láta gera það? það er skýrt hér í texta hér fyrir ofan

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Það er ekki stefna Reykjavíkurborgar að lýsa upp malarstíga á útivistarsvæðum. Þeir eru hluti af þeim svæðum sem halda skal myrkurgæðum í hámarki og sporna við ljósmengun. Minni ljósmengun er í samræmi við græna vistspor Reykjavíkurborgar og stuðar að orkusparnaði og betra umhverfi fyrir flóru, og fánu Reykjavíkur. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information