Bílastæði gengt Grundagerðisgarði

Bílastæði gengt Grundagerðisgarði

Hvað viltu láta gera? Ganga frá plani sem er við Grundargerði á milli Búðagerðis 4,6 og 8 annars vegar og hinsvegar Melgerði 1 Það sárvantar bílastæði fyrir bæði okkur og gesti Grundagerðisgarðar. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég vil vísa í bréfasamskipti sem íbúar í Búðagerði hafa verið í við borgina og óskað eftir því að fá að byggja bílskýli eða bílaplan en fengið synjun en íbúar í Melgerði 1 fengu úthlutað stóran hlut að þessu svæði án þess að eiga neitt tilkall til lóðarinnar. Það sem eftir stendur er í sameiginlegri eigu íbúa í Búðagerði og borgarinnar og þarfnast nauðsynlega að ganga frá því, svona er það til skammar fyrir alla. Við erum enn með til skoðunar gerræðisleg vinnubrögð skipulagsnefndar varðandi úthlutun hluta úr lóð þessari til íbúa númer 1 við Melgerði. Með bestu kveðju, Guðríður Þorvaldsdóttir Búðagerði 4, sími 8622213

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information