stór skjár utandyra fyrir bíómyndir.

stór skjár  utandyra fyrir bíómyndir.

Hvað viltu láta gera? setja stóran skjá utandyra fyrir bíómyndir. stóri skjárinn væri fyrir alla og ókeypis nema ef þú ætlar að auglýsa einhvað en það kostar bara 200000kr, það verður app og það á að vera kosið hvaða myndskeið verður spilað, það sem er í boði er t.d kennsluefnið hjá honum Gauta Eiriksyni og 70 mínutur, næturvaktin. Þetta er hugsað sem bílabíó að mestu leiti. Hvers vegna viltu láta gera það? það er gott fyrir heilsuna og myndi eflaust styrkja félagslíf unglinga þar sem að þeir myndu vera mest að nota þetta. Þá myndi fólkið sem kaus myndina sem er sýnd á skjánum vera sammála með einhvað og gætu því kynnst með það í huga. Það yrði örugglega mikið af pörum að horfa og myndi þá kjósa rómantíska mynd og þyrfti kannski að takmarka hversu oft það væri hægt að horfa á rómantískar myndir í röð.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information