Gatnamót Bústaðavegar og Grensásvegar

Gatnamót Bústaðavegar og Grensásvegar

Hvað viltu láta gera? Vil sjá afrein af Grensásvegi vestur Bústaðaveg Hvers vegna viltu láta gera það? Liðkar mjög fyrir flæði bílaumferðar, þ.e. þeirra er aka suður Grensásveg og ætla að beygja vestur Bústaðaveg, í dag myndast oft langar biðraðir ökutækja er ætla að þessa leið og það þó svo að lítil sem engin umferð sé eftir Bústaðavegi til vesturs á sama tíma. Þessu fylgir oft mikill óþarfa útblástur frá kyrrstæðum bifreiðum er bíða þess að komast leiðar sinnar. Þess utan hefur varla nokkur borgari áhuga á að sitja á þeim bekkjum sem hefur verið komið fyrir þarna við gatnamótin í öllum útblæstrinum frá kyrrstæðum bifreiðum. Jafnframt myndi breyting í þessa veru liðka mjög fyrir umferð af Grensásvegi, hvort sem er niður Eyrarland eða um Bústaðaveg til austurs (vinstri beygja af Grensásvegi).

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information